Eins og glöggir lesendur heimasíðu Tilveru hafa tekið eftir þá hefur hún legið niður undanfarna daga. Þetta gerðist í kjölfar þess að breytingar voru gerðar á tölvubúnaði Heklu Soft sem hýsir heimasíðuna. Frekari vandkvæði eiga ekki að koma upp en ef eitthvað er þá endilega hafið samband í gegnum netfangið
25. október 2006 - Meira um aðalfundinn
Aðalfundur Tilveru verður eins og áður hefur verið kynnt þann 1. nóvember 2006.
Á meðal þess sem farið verður yfir eru niðurstöður úr samstarfi við Dr. Gyðu Eyjólfsdóttur sálfræðing, störf stjórnarinnar síðastliðið ár, spennandi ný verkefni og fleira. Kynntar verða lagabreytingatillögur, meðal annars hefur komið fram tillaga um að breyta nafni félagsins úr Tilvera, samtök gegn ófrjósemi í Tilvera, samtök um frjósemi.
Við erum alltaf að leita að nýju og áhugasömu fólki til að starfa með okkur í stjórninni og ef þú hefur áhuga þá endilega hafðu samband í gegnum tölvupóstinn
en einnig verður tekið við framboðum á aðalfundinum sjálfum.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Stjórnin.
15. október 2006 - Aðalfundur Tilveru
Aðalfundur 1. nóvember 2006 kl 20:00 - 22:00
Aðalfundur Tilveru verður haldinn miðvikudaginn 1. nóvember kl. 20:00 - 22:00 á Nordica Hótel
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir: 19:15 - Kyrrðarstund, tækifæri til að kveikja á kerti og eiga saman notalega stund 20:00 - Fundur hefst, starfsemi stjórnar á yfirstandandi ári kynnt 20:45 - Kaffihlé 21:00 - Lögbundin aðalfunarstörf Lagabreytingar Kosning í stjórn og nefndir
Allir velkomnir. Stjórnin
9. október 2006 - Niðurstaða úr könnun
Spurt var: Félagsfundur á Akureyri í haust
Svörin voru eftirfarandi. Bý á höfuðborgarsvæðinu og finnst þetta góð hugmynd: 14 svöruðu eða 42.4% Bý á höfuðborgarsvæðinu og finnst þetta allt í lagi hugmynd: 5 svöruðu eða 15.2% Bý á norðurlandi og myndi pottþétt mæta.: 5 svöruðu eða 15.2% Bý á norðurlandi og myndi kannski mæta: 3 svöruðu eða 9.1% Bý nálægt hvorugum staðnum og myndi ekki vilja fá fund til mín: 2 svöruðu eða 6.1% Bý á norðurlandi og myndi ekki mæta: 2 svöruðu eða 6.1% Bý nálægt hvorugum staðnum og myndi vilja fá fund til mín: 1 svaraði eða 3% Bý á höfuðborgarsvæðinu og finnst þetta ekki góð hugmynd: 1 svaraði eða 3%
8. október 2006 - Fundurinn á Akureyri
Á fundinum var fámennt en góðmennt. Þeir sem mættu fengu kynningu á því sem er í vændum hjá félaginu, smá forsmekk að því sem koma skal á aðalfundinum sem verður í byrjun nóvember.
Við í stjórninni fengum mikilvægar upplýsingar um það sem betur má fara þegar kemur að þeirri þjónustu sem fólk með ófrjósemi fær, eða fær ekki, á Akureyri. Þessi atriði eru komin á listann hjá okkur og verður farið í að finna leiðir til að bæta ástandið.
Nú er það í höndum ykkar, félagsmanna og annarra sem nýta sér heimasíðuna og krafta Tilveru, að láta okkur vita hvar við getum beitt okkur frekar, hvað þið viljið sjá okkur gera til að bæta þjónustu við þá sem eiga við ófrjósemi að stríða. Stjórnin er viljug til að koma á fundi utan höfuðborgarsvæðisins, öll eða einstaka fulltrúar. Endilega sendið okkur línu í gegnum tölvupóstinn eða prívat skilaboðin á Tilveru spjallinu.
29. september 2006 - Fundur á Akureyri
Akureyri 7. okt
Þá er komið að því, Tilvera verður með fund á Akureyri þann 7. október 2006, milli kl 15 og 17 á Hótel KEA. Á staðnum verða nokkrir úr stjórn félagsins og þetta er tilvalið tækifæri til að ræða við okkur og aðra í sömu sporum. Dagskrá: 15:10 Kynning á starfsemi félagsins 15:40 Hvað er nýtt og næst á döfinni 16:00 Opnar umræður og fyrirspurnir Allir eru velkomnir og það verður heitt á könnuni. Stjórnin