ţriđjudagur 07 september 2010
4. ágúst 2007 - Könnun um nafn Tilveru
Könnunin stóð yfir dagana 21. maí til 4. ágúst 2007
Stýð: Tilvera, samtök um ófrjósemi - 39 atkvæði eða 43,3%
Styð Tilvera - 26 atkvæði eða 28,9%
Finnst það flott eins og er - 17 atkvæði eða 18,9%
Finnst mega breyta nafninu - 8 atkvæði eða 8,9%
29. júlí 2007 - Sumarfrí
Það hefur ekki mikið verið að gerast í júní og júlí enda sumar og margir í sumarfríi. Stjórnin hefur hins vegar ekki lagt niður störf heldur höfum við verið að vinna að undirbúningi fyrir sumargrillið 19. ágúst og verið er að skipuleggja fræðslufund með Dr. Gyðu Eyjólfsdóttur 4. september.

Nánari tilkynningar og frekari fréttir koma þegar nær dregur.
23. maí 2007 - Frćđslufundur

Fræðslufundur
23. maí 2007
Kl 20:00
Hótel Sögu

Munið fundinn í kvöld. Allir velkomnir.

Áhugavert verður að heyra hvað Kolbrún Ragnarsdóttir fjölskylduráðgjafi hefur að segja um tilfinningaviðbrögð við áfalli því ekki er hægt að neita því að erfitt getur verið að takast á við endurteknar neikvæðar niðurstöður úr frjósemismeðferð, fósturlát og aðra þá hluti sem upp geta komið í öllu þessu ferli.

22. maí 2007 - Ađalfundur samtaka kvenna međ endómetríósu
Við viljum vekja athygli ykkar á að aðalfundur Samtaka kvenna með endómetríósu (SKE) verður haldinn í dag, þriðjudaginn 22. maí 2007 kl. 20.00 í kennslusal Landspítalans við Hringbraut.

Þessar upplýsingar eru fengnar af heimasíðu SKE www.endo.is

21. maí 2007 - Breyting á nafni félagsins?
Um nokkurn tíma hefur farið fram umræða innan stjórnarinnar, og utan, um nafn félagsins.


Tilvera, samtök gegn ófrjósemi


Það helsta sem bent hefur verið á er að erfitt er að skilgreina hvernig við erum gegn, eða á móti, ófrjósemi. Við í félaginu eigum ófrjósemina sameiginlega og það er jú hægt að segja að við séum að berjast við hana, en erum við virkilega á móti ófrjósemi?

Fram hafa komið tillögur um að breyta nafni félagsins í:

Tilvera, samtök um ófrjósemi

Einnig hefur verið rætt að sleppa undirtitli félagisins og nota nafnið eitt og sér:

Tilvera.
Meira
20. maí 2007 - Niđurstađa könnunar um međferđafjölda 2006
Spurt var:  Hvað fórstu í margar heilar meðferðir Glasa/smásjár/tækni árið 2006?
Könnunin var uppi á tímabilinu 2. janúar til 18. maí 2007.
Svörin voru eftirfarandi:

Enga.                                  104  eða   37.8%  
Eina.                                    59   eða  21.5%  
Tvær.                                  57    eða  20.7%  
Þrjár.                                  23    eða   8.4%  
Fjórar.                                21    eða   7.6%
Átta.                                     7    eða   2.5%  
Fimm.                                   2    eða   0.7%  
Sex.                                      2    eða   0.7%  
Sjö.                                       0    eða   0%  
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Niđurstöđur 81 - 96 af 194

Skráđu ţig hér
Kannanir
Ćtlar ţú ađ mćta á frćđslufund Tilveru 7. September?
  
Hverjir eru tengdir
Núna eru 4 gestir inni
Tölfrćđi
Gestir: 749103
tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin