|
|
|
15. nóvember 2007 - Fyrirlestur í Odda |
Þann 21. nóvember kl 12:00 mun Helga Sól vera með fyrirlestur í Odda 101 í Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn er á vegum Rannsóknarseturs í barna- og fjölskylduvernd www.rbf.is og mun hún kynna fyrstu niðurstöður úr doktors rannsókn um möguleika og ákvarðanatöku norrænna para sem eiga við ófrjósemi að stríða.
Helga Sól hefur starfað við þennan málaflokk síðan 1999, fyrst sem félagsráðgjafi á tæknifrjóvgunardeildinni á Landspítalanum og síðar á einkaklínik í Gautaborg. Núna er hún í doktorsnámi við Norræna lýðheilsuháskólann í Gautabork. |
|
14. nóvember 2007 - Kaffihúsahittingur 20 nóv 2007 |
Kaffihúsahittingur þriðjudaginn 20. nóvember kl 20:00
Nú líður að þriðja kaffihúsa hittingnum okkar .. verður hann á sama stað og þeir fyrri eða í Iðu lækjargötu.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta, þetta er frábært tækifæri til að setjast niður í ró og næði og spjalla saman. Þetta er síðasti hittingurinn á þessu ári en við munum taka þráðinn aftur upp eftir áramót eða í janúar 2008 kveðja Stjórnin |
|
05. nóvember 2007 - Minnum á fund um endómetríósu |
Samtök kvenna með endómetríósu halda sinn fyrsta fræðslufund þriðjudaginn 6. nóvember kl. 20.00 í Hringsal Landspítala Íslands við Hringbraut. |
|
30. október 2007 - Ađalfundurinn |
Þá er komið að því. Aðalfundurinn verður haldinn í kvöld, þriðjudagskvöld.
Aðalfundur Tilveru30. október 2007kl 20:00Hilton Reykjavík NordicaSuðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík Dagskránna er að finna í fréttinni hér að neðan.
Einnig viljum við minna á að Dr. Gyða Eyjólfsdóttir verður með fræðslufund sem hluta af aðalfundinum. Efnið sem hún fer yfir er mjög spennandi og hvetjum við alla til að mæta, félagsmenn jafnt sem þau ykkar sem ekki eru skráð í félagið. |
|
15. október 2007 - Frćđslufundur um endómetríósu |
Til þeirra félagsmanna sem áhuga hafa.
Samtök kvenna með endómetríósu halda sinn fyrsta fræðslufund þriðjudaginn 6. nóvember kl. 20.00 í Hringsal Landspítala Íslands við Hringbraut. Læknarnir Reynir Tómas Geirsson og Auður Smith halda tvö erindi, annað um sjúkdóminn sjálfan og hitt um speglun og aðrar aðgerðir sem koma til greina. Eftir kaffi er svo fyrirspurnartími þar sem þú getur spurt út í efni fyrirlestranna. Taktu fjölskyldu og vini með því þekking þinna nánustu á sjúkdómnum kemur þér til góða.
Tilvera og SKE hafa átt gott samstarf og eru félagsmenn Tilveru velkomnir á þennan fund. |
|
Könnun 24 Ágúst 07 - 23 Október 07 |
Fékstu lækkun á tekjuskattstofni vegna meðferða?
| | | | Nei.
| 10 eða 34,5%
| Gleymdi að sækja um.
| 9 eða 31%
| Já
| 9 eða 31%
| Annað okkar fékk lækkun.
| 1 eða 3,4%
| | | | Fjöldi kjósenda 29
| | Fyrst kosið 24 ágúst 2007
| | Síðast kosið 19 október 2007
| | |
| | << Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
| | Niđurstöđur 65 - 80 af 194 | |

|
|
|
|
Hverjir eru tengdir |
|
Núna eru 2 gestir inni |
|