|
|
|
Desember kaffihús Við minnum á að kaffihúsa hittingurinn er í fríi núna í desember en við munum taka upp þráðinn að nýju 21. janúar 2009 á sama stað og tíma. með kveðju Stjórn Tilveru |
|
Kaffihúsa fundur 19. nóvember.
Minnum á kaffihúsafundinn okkar miðvikudaginn 19. Nóvember.kl 20:00 Frábært tækifæri til að spjalla við fólk með samskonar reynslu og fullan skilning á því sem við erum að ganga í gegnum.
Með kveðju Stjórnin Síðasti fundur fyrir jól um að gera að mæta. |
|
Skýrsla stjórnar 2007-2008 |
|
Aðalfundur Tilveru samtaka um ófrjósemi |
|
Aðalfundur Tilvera samtök um ófrjósemi heldur aðalfund sinn Mánudaginn 27. Október kl. 20:00 á Park INN Island, Ármúla 9, 2. hæð. Dagskrá: - # Setning fundar. Alma Birna Bragadóttir varaformaður er fundarstjóri
- # Arndís Berndsen ritari fer yfir skýrslu stjórnar
- # Umræða um skýrslu stjórnar
- # Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir
- # Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar
- # Tillögur um lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum
- # Kjör stjórnar og varamanna
- # Kjör skoðunarmanna reikninga
- # Aðalfundarstörfum líkur
- # Kristín Jónsdóttir kynnir hydrolaparoscopy sem Tilvera gaf Landspítalanum fyrr á árinu
- # Hlé 15 mínútur
- # 9 mánuðir, kynning á starfseminni og þá sérstaklega nálastungum við ófrjósemi.
Hvetjum alla til að mæta, þetta er góður staður til að hitta stjórnina, bjóða sig fram eða bara fræðast aðeins meira um ófrjósemina sem við erum endalaust að berjast við. Allir sem mæta taka þátt í happdrætti, þar sem góðir vinningar eru í boði. Enn vantar fólk í stjórn og vill stjórnin hvetja alla þá sem hafa áhuga á að starfa í stjórn að hafa samband eða mæta á aðalfund og bjóða sig fram. |
|
Meira
|
|
Kaffihúsafundur 15.október 2008 |
|
Kaffihúsa fundur í október verður haldinn miðvikudaginn 15. október.
Breyting á opnunartíma Kaffi París í kringlunni varð til þess að ákveðið var að flytja þessa samkomu okkar yfir á miðvikudaga. Endilega nýtið tækifærið til að sýna ykkur og sjá aðra og ekki slæmt að hitta stjórnarmeðlimi sem mæta alltaf og eru tilbúnir í skemmtilegt spjall um allt milli himins og jarðar.
Með kveðju Stjórnin |
|
Niðurstaða könnunar 17.ágúst -6 okt 2008 |
| | << Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
| | Niðurstöður 33 - 48 af 194 | |

|
|
|
|
Hverjir eru tengdir |
|
Núna eru 7 gestir inni |
|