žrišjudagur 07 september 2010
Hve lengi į aš reyna aš eignast barn įšur en leitaš er lęknis?
Svarið við þessari spurningu veltur á ýmsu. Flestir læknar tala um eitt ár. Fyrir par sem hefur tímasett samfarir rétt og fylgst vel með egglosi konunnar, er þessi tími í það lengsta. Par sem veit hvenær frjósamasti tíminn er og gerir það sem hægt er til að hámarka sínar líkur á þungun í hverjum mánuði ætti að fá gleðifréttir í síðasta lagi um hálfu ári síðar ef allt er eðlilegt. Þessi tími lengist gjarnan ef konan hefur verið á pillunni í mörg ár. Líkami konunnar þarf sinn tíma til að jafna sig eftir áralangar hormónatökur og byrja að starfa eðlilega á ný. Það getur tekið mislangan tíma frá konu til konu, sumar konur eru lengi í “gang” og á meðan eru líkur á þungun takmarkaðar þar sem egglos er ýmist óreglulegt eða verður ekki. Aðrar konur jafna sig fljótt og líkaminn tekur við sér örskömmu eftir að hormónatökum er hætt. Ef blæðingar eru mjög óreglulegar, hafa verið óreglulegar áður en konan byrjaði á getnaðarvörnum eða það líða meira en 45 dagar á milli blæðinga er fyllsta ástæða að fara til læknis til að fara yfir stöðuna og fá ráð um framhaldið. Oftast nær er konum sem svona er ástatt um boðið lyfið Pergotime sem getur komið nægri reglu á tíðahringinn og þar með aukið líkur á getnaði. Einnig getur verið ástæða til að fara fram á blóðprufur til að kanna hormónaframleiðslu líkamans og fleiri þætti sem spila inn í frjósemina.
Meira
Minnislisti fyrir tęknifrjóvgun
Áður en að tæknifrjóvgun kemur, er nauðsynlegt að gefa sér nokkra mánuði til undirbúnings áður en haft er samband við ART Medica til að athuga hvort hægt er að komast að. Nauðsynlegt er að gera nokkrar rannsóknir á pari sem undirgengst tæknifrjóvgunarmeðferðir samkvæmt reglum sem gilda á ART Medica og voru teknar í arf frá glasafrjóvgunardeild LSH. Þær geta tekið tíma og þess vegna er bráðnauðsynlegt að hugsa nokkra mánuði fram í tímann ef meðferðir af þessu tagi eru á teikniborðinu.
Meira
<< Byrjun < Fyrri 11 12 13 Nęsta > Endir >>

Nišurstöšur 193 - 194 af 194

Skrįšu žig hér
Kannanir
Ętlar žś aš męta į fręšslufund Tilveru 7. September?
  
Hverjir eru tengdir
Nśna eru 6 gestir inni
Tölfręši
Gestir: 749104
tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin