Fimmtudagur 09 september 2010
Vantar fólk í stjórn 2009

Vantar nýtt fólk í stjórn
Nú fer senn að líða að aðalfundinum okkar.
Okkur vantar nýtt fólk í stjórn þetta árið,
þar sem fjórir stjórnarmenn gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu.

Það er ákveðinn styrkur að hafa karlmenn í stjórn
og viljum við því biðja ykkur strákar að opna möguleikann
að koma og starfa með stjórninni jafnt við konurnar.
Það er bara betra að hafa sjónarmið beggja kynja í stjórn sem berst fyrir
réttindum okkar sem eigum við ófrjósemi að stríða.

 Það vantar:
Tvo stjórnarmeðlimi sem kosnir eru til tveggja ára í senn.
 Tvo varamenn sem eru kosnir til eins árs í senn.

 Það er bara gaman að starfa í stjórn og vinna að okkar málefnum,
það þarf að mæta á fund einu sinni í mánuði stundum oftar fer bara eftir því hvað er í gangi.

Endilega þið sem hafið áhuga á að starfa innan stjórnar
sendið okkur email á
til að tilkynna ykkur í framboð.

Að hika er sama og að tapa.

Kveðja Stjórnin.

Kaffihúsa fundir haust 2009

Kaffihúsa fundir Tilveru.
Kaffihúsfundir Tilveru voru illa sóttir síðasta vetur.
Því hefur stjórnin ákveðið að gefa þeim frí fram að áramótum.
Þann tíma munum við nota til að kanna hug félagsmanna
á því að gera aðra tilraun til kaffihúsafunda.
Endilega látið okkur vita ef þið hafið hug á að mæta kaffihúsafundi,
standi þeir til boða og hvetjum við ykkur til að greiða atkvæði í könnuninni hér til hliðar.

kveðja stjórnin

Niðurstaða könnunar apríl - september 2009

Sumargrill Tilveru 2009

Sumargrill Tilveru 2009
Þann 14. júní verður okkar árlega sumargrill í Furulundi í Heiðmörk kl 15:00.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem eru skemur á veg komnir í sinni baráttu að hitta
reynslubolta sem og þá sem hafa fengið afrakstur erfiðisins í hendurnar.
Allir eru velkomnir, en þeir sem ekki eru félagsmenn þurfa að borga 500 kr. á manninn.
Það er þó frítt fyrir öll óskabörn.
Vonum að við sjáum sem flesta

Kveðja
Stjórn Tilveru.

 

Meira
fræðslufundur maí 2009

Biðtíminn.

Fræðslufundur Tilveru miðvikudaginn 20. maí kl. 20:00
Skútuvogi 1A, 2. hæð
Sama hús og Raftækjaverslun Íslands var í,
farið hægra megin við húsið og svo upp á 2. hæð.
 

Biðtíminn.
Hvernig getur maður tekist á við þessar erfiðu tvær vikur frá uppsetningu fram að niðurstöðu? 
Gyða Eyjólfsdóttir sálfræðingur fer yfir ýmiskonar ráð og hugmyndir er tengjast biðtímanum.

Það eru allir velkomnir og
vonumst við til að sjá sem flesta.

kveðja Stjórn Tilveru

Meira
Niðurstaða könnunar feb - apríl 2009

Á sama tíma er komin ný könnun.

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 17 - 32 af 194

Skráðu þig hér
Kannanir
Ætlar þú að mæta á fræðslufund Tilveru 7. September?
  
Hverjir eru tengdir
Núna eru 17 gestir inni
Tölfræði
Gestir: 749902
tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin