Fimmtudagur 09 september 2010
19. janúar 2006 - Meint fjármálamisferli á glasafrjóvgunardeild LSH
Ríkislögreglustjóri hefur nú til rannsóknar meint fjármálamisferli á Glasafrjóvgunardeild Landsspítalans. Talið er að einn starfsmaður deildarinnar hafi dregið sér fé. Honum hefur verið vikið úr starfi og þess farið á leit við um eitt hundrað fyrrverandi skjólstæðinga deildarinnar að þeir veiti leyfi til að ríkislögreglustjóra verði gefnar upplýsingar um greiðslur þeirra til deildarinnar.Umrætt misferli er talið hafa átt sér stað 2002-2004, og að starfsmaðurinn sem um ræðir hafi dregið sér milljónir króna.
Frétt birt á mbl.is 19. janúar 2006

Sjá frétt á vef ríkissjónvarpsins www.ruv.is.
Sjá frétt frá NFS á visir.is.
Meira
18. janúar 2006 - Ísland í bítið, kostnaður við ættleiðingu
Í Ísland í bítið var rætt við þau Elínu Hendriksen og Jóhann Sigurðsson um kostnað vegna ættleiðingar hér á landi líkt og rætt var um kostnað vegna tæknifrjóvgana í gærmorgun.  Elín er ritstjóri fyrir vefsíðuna ættleiðing.is og á hún dreng ættleiddan frá Rússlandi og Jóhann á stúlku ættleidda frá Kína.

Hægt er að sjá viðtalið hér, Ísland í bítið.
17. janúar 2006 - Ísland í bítið, gjaldskrárumræða
Í Ísland í bítið var tekið viðtal við formann Tilveru, Kristinn Jón Eysteinsson, og Tinnu Ómarsdóttur.  Ræddu þau um hvernig gjaldskrármálum í sambandi við tæknifrjóvganir eru háttað hér á Íslandi og í Danmörku. 

Tinna Ómarsdóttir hefur búið í Danmörku undanfarin ár og þurft á tæknifrjóvgunum að halda þar.  Hún hafði samband við Kristinn og Ísland í bítið og fannst þeim rétt að benda á hversu mismunandi staðið er að þessum málum í þessum tveimur löndum.

Hægt er að sjá viðtalið hér, Ísland í bítið
16. janúar 2006 - Fjölgun félagsmanna í Tilveru
Kæru félagsmenn, ástæða er til þess að fagna velgengni samtakanna á síðasta ári.  Fjöldi félagsmanna hefur tvöfaldast á einu ári sem verður að teljast góður árangur og er líklegast metfjöldi skráðra félagsmanna í samtökunum. Þessari fjölgun þakkar stjórn Tilveru þá umfjöllun sem málefni okkar fékk í fjölmiðlum á síðasta ári og má þar helst nefna umræðuþáttinn Fólk með Sirrý sem og fréttaflutningi um þessi mál á árinu.
Meira
31. desember 2005 - Starfslokakveðja
Fyrir hönd félagsmanna Tilveru og stjórnar viljum við þakka Sigríði Þorsteinsdóttur, yfirhjúkrunarfræðGjöf til Sigguingi, hjá Art Medica fyrir frábærlega vel unnin stöf í þágu tæknifrjóvgunarmeðferða. Sigríður eða Sigga eins og hún hefur verið kölluð hefur stundað þessa starfsemi alveg frá því að glasafrjóvganir voru fyrst framkvæmdar á Íslandi árið 1991. Hún er einn af stofnendum þessarar starfsemi hér á landi og því einn af frumkvöðlum okkar í að koma  þessari starfsemi af stað hér á landi.
Hún er nú að láta af störfum hjá Art Medica og hefur ákveðið að hefja störf hjá St. Jósefsspítala á nýju ári. Það er mikil eftirsjá í svona góðum starfskrafti og ómetanlegt það starf sem hún hefur lagt af mörkum til þeirra sem lagt hafa mikið á sig við að reyna að eignast börn með aðstoð vísindanna.

Á myndinni hér til hægri er gjöfin sem henni var færð af stjórn Tilveru fyrir hönd félagsmanna.
Meira
23.desember 2005 - Jóla og nýárskveðja

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Kæru félagsmenn, óskabörn, aðstandendur og aðrir velunnarar
Við sendum ykkur okkar bestu óskir um fögnuð og frið á jólahátíðinni og farsæld
á komadi ári..Þökkum hlýjan hug, stuðning og góðar stundir á liðnu ári.
Við vonumst til að næsta ár færi okkur öllum hamingju og að
draumar okkar fái að rætast.

Með kærri jólakveðju
Tilvera

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 145 - 160 af 194

Skráðu þig hér
Kannanir
Ætlar þú að mæta á fræðslufund Tilveru 7. September?
  
Hverjir eru tengdir
Núna eru 12 gestir inni
Tölfræði
Gestir: 749895
tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin