þriðjudagur 07 september 2010
15. júlí 2006 - Sumarfrí stjórnar Tilveru
Við í stjórninni ætlum að taka okkur sumarfrí frá og með deginum í dag fram til 15. ágúst. Á þessu tímabili má búast við því að svör við fyrirspurnum og öðru í tölvupóstfangið muni taka aðeins lengri tíma og líklegast munu ekki koma inn nýjar kannanir eða fréttir nema um eitthvað stórt og mikilvægt sé að ræða. Einhver okkar munum þó fylgjast með spjallinu og tölvupóstinum af og til því við getum ómögulega slitið okkur frá ykkur.



Sumarfrískveðjur frá stjórninni.

25. júní 2006 - Á ríkið að greiða tæknifrjóvganir að fullu ?
Er hagkvæmt fyrir ríkið að greiða niður tæknifrjóvgunarmeðferðir að fullu?

Breskir tölfræðingar hafa komist að þeirri niðurstöðu þar í landi að með hverjum nýjum einstaklingi sem fæðist í heiminn eftir tilstilli tæknifrjóvgunar skili það sér ellefu falt til baka þann kostnað sem meðferðin kostar þar í landi í formi skattgreiðslna og vinnuframlegð á æviskeiðinu.
Meira
8. júní 2006 - Breytt fyrirkomulag á Kæri Sáli
Þar sem dræmar undirtektir hafa verið á þeirri þjónustu sem Dr. Gyða Eyjólfsdóttir hefur boðið þeim sem nýta sér heimasíðuna hefur verið tekin ákvörðun um að breyta fyrirkomulagi Kæra Sála.
Meira
6. júní 2006 - Viðtal í Vikunni
Í nýjustu Vikunni, sem var að berast til áskrifenda, er viðtal við Kristinn Jón Eysteinsson, formann Tilveru, og Elínu Einarsdóttur, varaformann.

31. maí 2006 - Samstarfsnefnd í Heilbrigðisráðuneytinu
Formaður Tilveru, Kristinn Jón Eysteinsson, hefur fengið sæti í samsarfsnefnd í Heilbrigðisráðuneytinu. Þessi nefnd mun hafa augu með framkvæmd samnings milli Heilbrigðisráðuneytisins, LSH og ART Medica, auk þess sem hún verður vonandi vetvangur fyrir Tilveru til að koma með tillögur og ábendingar varðandi flest allt það sem snýr að okkur sem eigum við ófrjósemi að stríða.
Meira
28. maí 2006 - Breytingar á heimasíðunni
Smávægilegar breytingar hafa verið gerðar á því hvernig upplýsingar birtast hér á heimasíðunni. Áður var það þannig að þegar efni var valið komu upp tenglar með þeim greinum sem til eru um viðkomandi efni. Núna birtist upphaf greinarinnar eða kynning á henni og ætti það að hjálpa til við að finna hvort innihald greinarinnar sé það sem leitað er eftir eða ekki.


Eins og alltaf eru skoðanir ykkar og álit mikilvæg, við viljum fá að heyra hverju má breyta og hvað bæta. Nýtið ykkur tölvupóstfangið og látið skoðun ykkar í ljós.

<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 113 - 128 af 194

Skráðu þig hér
Kannanir
Ætlar þú að mæta á fræðslufund Tilveru 7. September?
  
Hverjir eru tengdir
Núna eru 8 gestir inni
Tölfræði
Gestir: 749119
tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin