|
|
|
september fræðslufundur 2010 |
|
Hvað gerist bak við luktar dyr rannsóknarstofunnar? 
Fræðslufundur Tilveru kl. 20, 7. september 2010 í Marel, Austurhrauni 9, Garðabæ. Gengið inn um vinstri enda hússins. Fyrirlesari er Hilmar Björgvinsson, líffræðingur á ART Medica. Hann mun fræða okkur um allt sem við viljum vita um það hvað gerist á rannsóknarstofunni. Þetta eru mjög fróðlegar og mikilvægar upplýsingar fyrir alla þá sem hafa eða munu notast við tæknifrjóvganir. Allir velkomnir. Við hlökkum til að sjá ykkur! Kveðja, stjórn Tilveru Gagnkvæmur trúnaður ríkir um það hverjir mæta á fræðslufundi Tilveru. Kort af staðsetningu hér |
|
Vantar Þátttakendur í rannsókn. |
|
Kæru félagsmenn. Sigríður Dögg Arnardóttir bað okkur um að auglýsa eftir þátttakendum í rannsókn sem hún er að fara af stað með. Hér er viðhengi með auglýsingunni og nánari upplýsingum.
Ef áhugi er fyrir hendi þá skuluð þið hafa samband við Siggu Dögg, við erum eingöngu milliliðir til að koma auglýsingunni á framfæri.
Við vonum svo sannarlega að nægir þátttakendur fáist í þessa rannsókn, þar sem allar rannsóknir sem varða ófrjósemi eru mikilvægar, sérstaklega hvað varðar karla, þar sem mun færri rannsóknir hafa verið gerðar á þeirra viðbrögðum við ófrjósemi. Með kveðju, stjórn Tilveru |
|
Meira
|
|
Aukaaðalfundur og fræðslufundur |
|
Fræðslufundur og aukaaðalfundur Tilveru, samtaka um ófrjósemi. Fræðslufundur og aukaaðalfundur Tilveru verður þriðjudaginn 13. apríl kl. 20, Hringssalnum, Barnaspítala Hringsins. Salurinn er á jarðhæð spítalans, gengið fram hjá lyftunum og beygt inn ganginn sem tengir Barnaspítalann við aðalbyggingu Landsspítalans. |
|
Meira
|
|
Tillögur að lagabreytingum kynntar. |
|
Lagabreytingatillögur og framboð í stjórn Stjórn Tilveru hefur farið í allsherjar endurskoðun á lögum félagsins. Hér með kynnum við þær breytingartillögur sem lagðar eru fram eftir þessa endurskoðun. Þetta eru yfirgripsmiklar breytingar þar sem sjónarmiðið var fyrst og fremst að einfalda lögin. Kosið verður um þessar lagabreytingartillögur á aukaaðalfundi þriðjudaginn 13. apríl. Staðsetning fundarins verður auglýst síðar. Lagabreytingarnar eru hérna |
|
opin fundur um staðgöngumæðrun |
Opinn fundur um staðgöngumæðrun23/3/2010 Heilbrigðisráðuneytið stendur fyrir opnum fundi um staðgöngumæðrun föstudaginn 26. mars næstkomandi, kl. 13:00-16:00. Fundurinn fer fram á Grand Hóteli. Fundarstjóri: Vilhjálmur Árnason prófessor, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar HÍ Dagskrá:13:00 Setning 13:05 Ávarp Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra 13:20 Guðríður Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs heilbrigðisráðuneytis og formaður vinnuhóps um staðgöngumæðrun, kynnir áfangaskýrslu vinnuhópsins 13:30 Er tímabært að heimila staðgöngumæðrun og þá með hvaða takmörkunum? Reynir Tómas Geirsson, prófessor og yfirlæknir á kvennadeild Landspítala Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar Ragnheiður Elín Árnadóttir alþingismaður Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent í guðfræðilegri siðfræði við HÍ Guðný Gústafsdóttir, kynjafræðingur og talskona Femínistafélags Íslands 14:40 Kaffihlé 15:00 Pallborðsumræður með framsögumönnum 16:00 Almennar umræður 16:30 Fundi slitið http://www.heilbrigdisraduneyti.is/frettir/nr/3218 |
|
Kaffihús og spjall þriðja þriðjudag í mánuði.
Þriðjudaginn 16. Mars 2010 kl. 20:00 Café Milanó Faxafeni 11. Þetta er frábær vettvangur til að hitta einhvern úr stjórninni og aðra í sömu eða svipuðum sporum og þið sjálf. Allir velkomnir sem eiga eða hafa átt við barnabras. Kveðja Stjórnin. |
| | << Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
| | Niðurstöður 1 - 16 af 194 | |

|
|
|
|
Hverjir eru tengdir |
|
Núna eru 13 gestir inni |
|