þriðjudagur 07 september 2010
Hvernig er hægt að auka líkur á þungun?

Fyrst og fremst er mikilvægt að fylgjast með egglosi konunnar. Það er hægt að gera með ýmsum aðferðum. Sú einfaldasta en jafnframt dýrasta er að nota egglospróf. Ágætt er að miða við að byrja að nota egglospróf nokkrum dögum áður en tíðahringur konunnar er hálfnaður. Þá eru þau tekin nokkra daga í röð uns prófið er orðið jákvætt.

Ódýrara er að nota stafrænan hitamæli (nákvæman) og fylgjast með hitanum í gegnum tíðahringinn. Þá mælir konan hitann í munni eða leggöngum á hverjum degi áður en hún fer á fætur (mikilvægt er að fara ekki framúr til að ná í mælinn, heldur hafa hann við rúmið í seilingarfjarlægð) og skráir hann niður. Þegar hitinn hækkar skyndilega hefur egglos orðið. Líkur benda til þess að þá sé tækifærið liðið hjá. Hins vegar er hægt að áætla egglos 1 degi áður en hitinn hækkar skyndilega. Flestar konur eru með reglulegan tíðahring, og eftir um það bil 3 mælingar er hægt að reikna egglostímann út. Með þá vitneskju í farteskinu er eftirleikurinn mun auðveldari og ekki þarf að velkjast í vafa um hvenær á að „dansa barnadansinn“. Þegar þessi aðferð er notuð verður að hafa í huga að best er að mæla hitann alltaf á sama tíma dags og því er ágætt að stilla vekjaraklukkuna líka um helgar til að mæla hitann. Ekki er hægt að treysta mælingunni nema konan hafi fengið að minnsta kosti 4 tíma svefn um nóttina.

En hvað með karlmanninn?

Sæðistalning karlmanna er mishá eftir því hve oft þeir hafa sáðlát. Mælt er með því að þegar konan er frjó, um það bil 4 dögum fyrir egglos og 1-2 dögum eftir það hafi karlmaðurinn og konan samfarir á um eins og hálfs til tveggja sólarhringa fresti. Þá nær sæði karlmannsins nægri þéttni en líkurnar á að þau missi af frjósamasta tíma konunnar eru litlar.

Ótal margt getur haft áhrif á líkurnar á þungun, annað en tímasetning samfara miðað við egglos. Mikið álag og þreyta getur valdið röskun á líkamsstarfseminni, sem og óhollir lífshættir, svo sem reykingar, áfengisdrykkja og hreyfingarleysi hafa mjög neikvæð áhrif. Par sem er að reyna að geta barn ætti að forðast öll óæskileg efni í umhverfinu, hvort sem það er mengun, tóbaksreykur, lífræn leysiefni, eða önnur sterk efni.

Mikil kaffidrykkja hefur neikvæð áhrif á frjósemi kvenna. Rannsóknir hafa sýnt að einn kaffibolli á dag getur minnkað líkurnar á þungun um allt að helming. Það er því rétt að konur takmarki kaffidrykkju eins og kostur er ef barneignir eru á dagskránni. Hins vegar virðist hófleg kaffidrykkja hafa góð áhrif á sæði, þar eð hreyfigetan virðist aukast við hana skv. nýlegum rannsóknum.

Hollt fæði eykur heilbrigði og frjósemiFjölbreytt og næringarríkt fæði, vatnsdrykkja, holl hreyfing og næg hvíld hafa góð áhrif á frjósemi. Rannsóknir hafa sýnt að hálfur bolli af grænu tei á dag getur aukið frjósemina um helming. Í teinu eru andoxandi efni sem stuðla að heilbrigðri frumuskiptingu.

Allar konur sem reyna að eignast barn ættu að taka fólinsýru, um 400 mcg (míkrógrömm) á dag. Lýsi og fjölvítamín eru góður kostur, bæði fyrir karlinn og konuna. Athuga ber þó að ef lýsi og fjölvítamín eru tekin saman að fjölvítamínið sé án A og D vítamína því annars er hætta á ofskömmtun. Konan ætti að taka járn til að byggja upp blóðið fyrir meðgönguna, þar sem blóðmagn í líkamanum eykst um 50% þegar hún er þunguð.

Vísindarannsóknir hafa einnig sýnt að karlmenn sem taka fólinsýru og sink saman eru með allt að helmingi betri útkomu á sæðisprófum, hvort sem sæðisframleiðslan er góð eða slæm fyrir. Önnur vítamín og steinefni sem helst eru talin hafa jákvæð áhrif á frjósemi eru selen, magnesíum, B, C og E vítamín, jafnt fyrir konur og karla.


tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin