Fræðslufundur og aukaaðalfundur Tilveru, samtaka um ófrjósemi.
Fræðslufundur og aukaaðalfundur Tilveru verður þriðjudaginn 13. apríl kl. 20, Hringssalnum, Barnaspítala Hringsins. Salurinn er á jarðhæð spítalans, gengið fram hjá lyftunum og beygt inn ganginn sem tengir Barnaspítalann við aðalbyggingu Landsspítalans.
Byrjað verður á aukaaðalfundi þar sem kosið verður um lagabreytingartillögur sem þegar hafa verið kynntar félagsmönnum í tölvupósti. Það er líka hægt að nálgast þær á heimasíðu félagsins, www.tilvera.is. Einnig munum við kjósa þrjá nýja í stjórn félagsins til stjórnarsetu fram að næsta aðalfundi í október. Okkur vantar enn sjálfboðaliða til stjórnarsetu! Sendið póst á ef þið hafið áhuga eða nánari upplýsingar.
Starfsemi félagsins byggist á því að öflugt fólk bjóðist til starfa í stjórn þess. Að jafnaði eru stjórnarfundir einu sinni í mánuði og þess á milli fara samskipti stjórnarinnar fram á spjallborði á Netinu. Stjórnarseta getur verið afskaplega gefandi. Einnig er mikill stuðningur að hitta fólk reglulega sem skilur hvað maður er eða hefur verið að ganga í gegnum.
Að loknum aukaaðalfundinum mun Fríða Nicholls Hauksdóttir, löggildur osteópati og næringarþerapisti, halda fyrirlestur.
Fyrirlesturinn ber heitið „Náttúrulegar leiðir til að bæta frjósemi“. Þar verður fjallað um lífstíls- og næringarþætti er hafa áhrif á frjósemi og þ.a.l. geta stuðlað að ófrjósemi.
Þar á meðal verður fjallað um þau vítamín og steinefni sem eru mikilvæg fyrir frjósemi, fæðuóþol, sveppasýkingar og aðrar sýkingar sem geta minnkað frjósemi, umhverfisþætti er geta minnkað frjósemi og ýmiskonar prófanir m.a. til að greina vöntun steinefna og aukningu þungamálma í líkamanum.
Fríða hefur lokið fjögurra ára háskólanám í osteópatíu, með sérmenntun í greiningu og meðhöndlun ýmissa verkjavandamála. Þá hefur hún líka lokið námi í næringarþerapíu í Bretlandi. Fríða er meðlimur að breskum samtökum sem heita „Foresight preconceptual care society“. Foresight eru með 30 ára reynslu og rannsóknir að baki í meðhöndlun ófrjósemi (www.foresight-preconception.org.uk).
Fríða starfar á stofunni 9 mánuðir í Hlíðarsmára 2, Kópavogi. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.9manudir.is.