Fimmtudagur 09 september 2010
Fréttir
Fréttir
Leit
Aðalfundur 2009

Aðalfundur
Tilvera, samtök um ófrjósemi
heldur aðalfund sinn mánudaginn 12. október
kl. 20:00 á  Hilton Reykjavík Nordica.
 

 

Dagskrá:
·       Setning Fundar.
·       Kosning fundarstjóra og kynning á stjórn.
·       Skýrsla stjórnar, umræða.
·       Reikningar lagðir fram, umræða og þeir bornir upp til samþykktar.
·       Tillögur/lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
·       Kynning á frambjóðendum.
·       Kosningar.
·       Önnur mál.
·       Hlé .
·       Fræðslufundur  - Hilmar Björgvinsson, líffræðingur ART Medica, mun segja okkur frá öllu sem gerist bakvið luktar dyr rannsóknarstofunnar, þar sem börnin okkar eru búin til. Við hvetjum alla til að mæta, þetta er góður staður til að hitta stjórnina, bjóða sig fram eða bara fræðast aðeins meira um ófrjósemina sem við erum endalaust að berjast við.

 Enn vantar fólk í stjórn og  vill stjórnin hvetja alla þá sem hafa áhuga
á að starfa í stjórn að hafa samband á .

Það vantar tvo sem kosnir eru til tveggja ára og
tvo varamenn sem kosnir eru til eins árs í senn.

Hlutverk stjórnar er meðal annars að gæta hagsmuna fólks með ófrjósemi, halda fræðslufundi, senda út fréttabréf, mæta á stjórnarfundi einu sinni í mánuði og sinna stjórnarstörfum á stjórnarspjalli á Netinu.

Með kveðju stjórn Tilveru.


tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin