Fimmtudagur 09 september 2010
Vantar fólk í stjórn 2009

Vantar nýtt fólk í stjórn
Nú fer senn að líða að aðalfundinum okkar.
Okkur vantar nýtt fólk í stjórn þetta árið,
þar sem fjórir stjórnarmenn gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu.

Það er ákveðinn styrkur að hafa karlmenn í stjórn
og viljum við því biðja ykkur strákar að opna möguleikann
að koma og starfa með stjórninni jafnt við konurnar.
Það er bara betra að hafa sjónarmið beggja kynja í stjórn sem berst fyrir
réttindum okkar sem eigum við ófrjósemi að stríða.

 Það vantar:
Tvo stjórnarmeðlimi sem kosnir eru til tveggja ára í senn.
 Tvo varamenn sem eru kosnir til eins árs í senn.

 Það er bara gaman að starfa í stjórn og vinna að okkar málefnum,
það þarf að mæta á fund einu sinni í mánuði stundum oftar fer bara eftir því hvað er í gangi.

Endilega þið sem hafið áhuga á að starfa innan stjórnar
sendið okkur email á
til að tilkynna ykkur í framboð.

Að hika er sama og að tapa.

Kveðja Stjórnin.


tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin