Pergotime er frjósemislyf, sem einnig gengur undir heitunum Clomifen og Clomid en lyfjanafnið er Clomiphen Citrate. Það örvar starfsemi heiladinguls og eggjastokka og kemur reglu á starfsemi þeirra. Pergotime minnkar framleiðslu estrógens í líkamanum og hvetur eggjastokka og heiladingul til að framleiða aukið magn hormónanna LH (luteinizing hormone) og FSH (follicular stimulating hormone). Þessi tvö hormón vinna svo saman að því að örva egglos hjá konunni. Þannig getur kona með óreglulegan tíðahring haft reglulegra egglos á Pergotime og á þar með talsvert betri möguleika á að verða ófrísk.
Oftast byrja konur að taka lyfið í kringum 5. dag tíðahringsins og taka það í 4-5 daga til að framkalla egglos. Það tekst í um 75% tilfella. Af þeim 75% verða 20% þungaðar í fyrsta hring. Konur á Pergotime ættu að búast við egglosi um það bil 5-8 dögum eftir að lyfjatökunni er hætt. Þó ber að athuga að þetta er ekki algilt og egglostíminn er misjafn frá konu til konu. Til að hámarka líkur á getnaði á Pergotime er gott að miða við að hafa samfarir annan hvern dag frá og með þriðja deginum frá því að hætt var að taka lyfið og fylgjast vel með egglosi á þessum tíma. Eftir um það bil viku má reikna með að egglos sé liðið hjá. Með fleiri skömmtum minnka líkurnar á því að þungun verði. Yfirleitt er ekki er æskilegt að konur taki lyfið lengur en þrjá tíðahringi í senn. Ástæðan er sú að líkurnar á því að Pergotime virki eftir fyrstu þrjá hringina eru of litlar til að hægt sé að réttlæta töku þess þar sem tíðni aukaverkana eykst með lengri inntöku lyfsins. Ekki er mælt með því að þær konur sem eru með sjúkdóma í lifur taki lyfið þar sem þess eru dæmi að lyfið geti valdið óeðlilegri lifrarstarfsemi. Þetta er þó afar sjaldgæft. Á milli 10-20% sjúklinga geta búist við einhverjum aukaverkunum vegna Pergotime en ef skammtastærðin er rétt hafa þessar aukaverkanir sjaldnast áhrif á meðferðina. Aukaverkanir eru venjulega háðar skammtastærð og hverfa yfirleitt, þegar meðferð er hætt. Algengustu aukaverkanirnar af töku Pergotime eru höfuðverkur og svimi. Einnig er þekkt að lyfið getur haft áhrif á geðslag, valdið taugaóstyrk og svefnleysi, valdið sjóntruflunum, uppþembu, hitakófum, stækkun eggjastokka eða blöðrum á eggjastokkum og eymslum í brjóstum. Blöðrur á eggjastokkum geta valdið miklum kvölum í kviðarholi og ef vart verður við slíka verki er ráðlagt að hafa strax samband við lækni. Einnig ber að leita strax læknis ef vart verður við einkenni frá augum, svo sem sjóntruflanir. Sjaldgæft er að Pergotime valdi þyngdaraukningu eða þreytu, ofsakláða, þrota, tímabundnum hármissi, þunglyndi, geðsveiflum, segareki og óeðlilegum blæðingum. Til eru dæmi þess að Pergotime hafi valdið krömpum, en þá aðallega í sjúklingum sem hættir til að fá slík krampaköst. Misjafnt er hve skilyrði fyrir sæði og fósturvísi eru góð hjá konum en Pergotime getur einmitt haft neikvæð áhrif á þessi skilyrði með því að þurrka upp legslímuna. Ástæðan fyrir því er sú að Pergotime minnkar magn estrógens í líkamanum en estrógen er það hormón sem örvar framleiðslu á eggjahvítuslími í leghálsinum. Þetta þýðir að dagana í kringum egglos verða skilyrðin í líkama konunnar mjög óhagstæð sæðinu gagnstætt því sem gerist í líkama heilbrigðrar konu. Þannig getur Pergotime unnið meira ógagn en gagn í sumum tilfellum og gjalda ber varhug við töku þess til lengri tíma þar sem þekkt er að tíðni aukaverkana eykst með lengri töku lyfsins og stærri skömmtum. Sumir læknar ávísa Pergotime til lengri tíma, jafnvel upp í eitt ár eða lengur. Þetta er afskaplega varhugavert, sérstaklega ef ekki eru tekin hlé á töku lyfsins. Faraldsfræðilegar rannsóknir benda til þess að hætta á krabbameini í eggjastokkum aukist eftir því sem lyfið er tekið lengur. Konur eru hvattar til að taka þetta lyf ekki lengur en 3 mánuði í senn til að minnka hættuna á aukaverkunum og ekki lengur samtals en 6 mánuði hámark. Ef Pergotime virkar ekki eftir þennan tíma er kominn tími til að leita aðstoðar lækna á ART Medica, glasafrjóvgunarstofunni. Á meðan lyfjameðferðinni stendur er skynsamlegt að láta fylgjast með egglosi þar sem Pergotime virkar ekki eins á allar konur. Allar konur sem taka Pergotime ættu að vera undir reglulegu eftirliti kvensjúkdómalæknis. Til að vinna gegn óæskilegum áhrifum Pergotime á slímhúð mælum við með inntöku á hóstasaftinni Tússól sem hefur jákvæð áhrif á slímhúð, 2-3 msk á dag á meðan inntöku lyfsins stendur. Hér er m.a. stuðst við upplýsingar á vef Lyfjastofnunar um Pergotime. Að lokum þetta:Þær konur sem fá ávísað Pergotime ættu undir engum kringumstæðum að hefja töku lyfsins ef ekki er búið að senda karlmanninn í sæðisrannsókn áður. Sæðisrannsókn á ÁVALLT að vera fyrsta rannsóknin sem gerð er vegna ófrjósemi og vera gerð ÁÐUR en meðferð við vandamálinu hefst. Ef læknirinn viðhefur ekki rétt vinnubrögð er rétt að skipta um lækni. |