Ættleiðing barns getur verið góð lausn á barnleysi fyrir mörg hjón.
Margir íhuga þennan möguleika fljótlega eftir að ófrjósemisvandamál
koma í ljós.
Á árinu 2004 voru 30 börn af erlendum uppruna ættleidd til
Íslands. Þetta er sami fjöldi barna og ættleidd voru til landsins árið
2003, en umtalsvert fleiri en ættleidd voru til landsins árin þar á
undan.
Sem fyrr komu flest börnin frá Kína eins og verið hefur
frá því ættleiðingar hófust þaðan til Íslands í maí 2002. Á árinu 2004
komu þaðan 22 börn, allt stúlkubörn. Er það sami fjöldi barna og
ættleidd voru frá Kína á árinu 2003. Á síðasta ári vor einnig ættleidd
7 börn frá Indlandi og 1 barn frá Kólumbíu.
Þótt ættleiðingum barna af erlendum uppruna hafi
fjölgað mjög á undanförnum tveimur árum, eru þær ekki hátt hlutfall af
fjölgun Íslendinga, því hér á landi fæðast um 4.100 börn á ári. Þetta
er heldur ekki mikill fjöldi ættleidra barna miðað við ættleiðingar á
öðrum Norðurlöndum. Á Íslandi nema ættleiðingar um 7,3 af hverjum 1000
fæddum börnum og hefur það hlutfall hækkað úr 4,3 frá árinu 1998. Á
öðrum Norðurlöndum er hlutfallið hins vegar á bilinu 9 til 10, þannig
að íslendingar yrðu ekki jafnokar annarra norðurlandaþjóða í
ættleiðingum barna af erlendum uppruna fyrr en hingað færu að koma um
40 börn á ári, miðað við óbreytta fæðingartíðni.
Upplýsingar fengnar af vefsíðunni www.aettleiding.is
Helstu vefsíður með upplýsingar um ættleiðingar á Íslandi:
www.isadopt.is - löggiltur milliliður í ættleiðingarmálum
www.aettleiding.is
|