Fimmtudagur 09 september 2010
Meðferðir og upplýsingar
Þegar par hefur verið greint með ófrjósemi tekur oftast nær við einhvers konar meðferð við henni. Þessi meðferð er sniðin að hverju pari fyrir sig en aðallega eru það 3 meðferðir sem valið er um. Tæknisæðingar og glasafrjóvganir eru algengustu meðferðirnar en sum pör þurfa á smásjárfrjóvgun að halda.

Allar meðferðir fara fram á glasafrjóvgunarstöðinni ART Medica, sem er til húsa að Bæjarlind 12 í Kópavogi. Hægt er að panta tíma í síma: 515-8100.

Greiðslur stéttarfélaga:
Mörg stéttarfélög á Íslandi taka þátt í kostnaði félagsmanna sinna við glasafrjóvganir. Þessi listi hér er langt frá því tæmandi, hann er aðeins yfir þau félög sem Tilveru er kunnugt um að greiði (eða greiði ekki) fyrir meðferðir og/eða ættleiðingar. Hver sá sem er í stéttarfélagi og þarf að gangast undir meðferð á tæknifrjóvgunardeild, ætti að kynna sér reglur síns stéttarfélags um þessa hluti. Jafnvel þótt ekkert liggi fyrir um að stéttarfélagið styrki svona meðferðir er það vel þess virði að senda inn umsókn um styrk, því það er aldrei að vita nema viðkomandi hljóti styrk, enda þótt styrkur hafi aldrei verið veittur áður.

Ef par er í sama stéttarfélagi hefur hvort um sig yfirleitt rétt til endurgreiðslu eins og reglur stéttarfélagsins kveða á um. Þó er yfirleitt ekki hægt að sækja bæði um styrk fyrir sömu meðferðina.

Einnig þarf að hafa í huga að sum stéttarfélög takmarka réttindi félagsmanna sinna við að þeir hafi borgað ákveðinn tíma til félagsins, við starfshlutfall eða önnur atriði og því þarf að skoða hvort slík skilyrði eru tilgreind í reglum sjúkrasjóðsins áður en hægt er að slá því föstu að fullur styrkur eins og hann er gefinn upp hér á þessari síðu fáist.
Athugið einnig að Tilvera tekur ekki ábyrgð á því að eftirfarandi upplýsingar séu réttar.

Allar leiðréttingar og ábendingar um styrkveitingar stéttarfélaga í þessu skyni má senda á tilvera@tilvera.is.


tilvera@tilvera.is - © Tilvera 2002-2004 - Öll réttindi áskilin